
Eineltisyfirlýsing Sunnulækjarskóla
Nemendur og
starfsmenn í Sunnulækjarskóla eru sammála um að einelti megi
ekki eiga sér stað í okkar hópi.
Við erum
sammála um að komi það fyrir munum við gera allt sem í okkar
valdi stendur til að stöðva það strax og koma í veg fyrir að það
geti endurtekið sig.
Einelti:
·
er endurtekið
ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á
einum.
·
getur falið í sér
misbeitingu á valdi þar sem gerandinn beitir hótunum og vill
ráða yfir þolandanum.
·
getur falið í sér
kerfisbundið afskiptaleysi gagnvart einstaklingi.
Einelti
getur verið:
·
Líkamlegt: barsmíðar, spörk, hrindingar, skemmdarverk
·
Munnlegt: uppnefni, niðrandi athugasemdir,
endurtekin stríðni
·
Skriflegt: bréfasendingar,
rafræn skeyti s.s. sms eða
tölvupóstur og veflægt, s.s blogg
eða samskiptasíður
·
Óbeint: neikvæð líkamstjáning, baktal, útskúfun eða útilokun
úr félagahópi
Fjallað er um einelti með öllum nemendum skólans og
eineltisyfirlýsingin samþykkt.
Í skólanámskrá er að finna
viðbragðsáætlun skólans sem unnið er samkvæmt ef upp kemur
grunur um einelti.