![]() |
|
|
|
Eineltisáætlun SunnulækjarskólaEineltisáætlun Sunnulækjarskóla skiptist í fjóra megin þætti, skilgreiningu, forvarnir, viðbrögð við einelti sem upp kemur og að lokum skráningu og mælingar. SkilgreiningTil að samræma skilning og tryggja að allir sem að málum koma hafi sameiginlega sýn á hvað einelti er hefur Sunnulækjarskóli sett fram stuttorða skilgreiningu á hvað einelti er. Skilgreiningin birtist m.a. í eineltisyfirlýsingu Sunnulækjarskóla en þar segir: Einelti: · er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einum. · getur falið í sér misbeitingu á valdi þar sem gerandinn beitir hótunum og vill ráða yfir þolandanum. · getur falið í sér kerfisbundið afskiptaleysi gagnvart einstaklingi. Einelti getur verið: · Líkamlegt: barsmíðar, spörk, hrindingar, skemmdarverk
·
Munnlegt: uppnefni, niðrandi athugasemdir,
endurtekin · Skriflegt: bréfasendingar, rafræn skeyti s.s. sms eða tölvupóstur og veflægt, s.s blogg eða samskipta- síður
·
Óbeint: neikvæð líkamstjáning, baktal,
útskúfun
ForvarnirEinn mikilvægasti þáttur í að vinna gegn einelti eru forvarnir. Þær hafa að markmiði að vinna með viðhorf, samskipti og aukinn skilning skólasamfélagsins á því hvað einelti er. Með öflugum forvörnum má draga úr líkum á að einelti eigi sér stað. Eftirfarandi þættir eru hluti af forvarnaráætlun Sunnulækjarskóla á sama tíma og þeir eru samofnir skólastarfinu.
ViðbragðsáætlunKomi upp einelti er fyrirliggjandi viðbragðsáætlun sem hægt er að styðjast við. Í viðbragðsáætlun eru tilgreind ýmis úrræði sem velja má úr. Umsjónarkennari í samráði við deildarstjóra og námsráðgjafa velja til hvaða úrræða er gripið. Foreldrar eru ávallt hafðir með í ráðum þegar tekið er á tilteknum eineltismálum. Sem dæmi um úrræði sem gripið er til er eftirfarandi:
Mælingar og skráning
Haldin er skrá um þau tilvik þar sem grunur um einelti vaknar. Eineltisráð fylgist með að ný tilfelli séu skráð og að skipulega sé unnið í skráðum tilfellum
Á hverju ári eru gerðar reglulegar mælingar á ýmsum þáttum skólastarf með því að spyrja tiltekið úrtak nemenda í 6. bekk og eldri tiltekinna spurningar. Þar á meðal eru spurningar varðandi einelti. Í niðurstöðum fæst samanburður milli allra skóla sem nota Skólapúlsinn og því sést hver staða skólans er miðað við aðra skóla á Íslandi.
Skólavogin er spurningakönnun sem Samband íslenskar sveitarfélaga framkvæmir í öllum skólum á Íslandi. Kannanirnar eru lagaðar fyrir nemendur, starfsmenn og foreldra. Í þeim könnunum er m.a. spurt um einelti og líðan og því hægt að meta stöðu Sunnulækjarskóla í samanburði við aðra skóla með Skólavoginni.
Rafræn könnun meðal foreldra skólans er framkvæmd annað hvert ár sem hluti af innra mati Sunnulækjarskóla. Í þeirri könnun er spurt um einelti og hægt að ráða af henni hvort árangur er að nást í vinnu gegn einelti í skólanum.
|