Skólastefna
Í Sunnulækjarskóla
stunda nemendur einstaklingsmiðað nám. Í því felst að
nám hvers nemanda er aðlagað að hæfileikum hans og getu
frekar en að nemendur séu flokkaðir í hópa með fyrirfram
skilgreinda eiginleika.
Skólabragur
Unnið er markvisst
að því að skapa andrúmsloft prúðmennsku og frelsis í
skólanum. Ábyrgð nemenda á eigin námi og framgöngu
sinni í skólanum verður þroskuð með því að veita þeim
viðeigandi ábyrgð, val og frelsi eftir því sem þroski
þeirra leyfir.
Kennarateymi
Kennarar skólans
vinna saman í teymum. Umsjónarkennarar innan árgangs eða
samliggjandi árganga mynda kennarateymi. Kennarateymið
framkvæmir og stjórnar daglegu skólastarfi tiltekinna
árganga.
Dagleg teymisvinna
Kennarateymi sér um
skipulag og framkvæmd hins daglega skólastarfs. Gerð
kennsluáætlana, áætlana um námsmat og eftirlit með
námsframvindu allra nemenda er á ábyrgð teymisins.
|