Leiðarljós
Til baka

Leiðarljós Sunnulækjarskóla

Leiðarljós starfsmanna Sunnulækjarskóla er:

·        að hver nemandi skólans þroskist og dafni í námi og starfi á eigin forsendum svo sem hann hefur getu til.

·        að hver nemandi skólans njóti virðingar og væntumþykju sama hvaða kostum og göllum hann er búinn.

·        að hver nemandi skólans öðlist sterka sjálfsmynd og áræði sem gefi honum þrek og þor og stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska.

·        að þroska með hverjum nemanda trausta siðferðiskennd sem gerir hann að hæfum og farsælum þjóðfélagsþegn.

·        að skapa skólasamfélag sem einkennist af samvinnu og gagnkvæmu trausti þeirra sem það mynda.