Hópráðgjöf og fræðsla
Til baka

Hjá náms- og starfsráðgjafa eru aðgengilegar upplýsingar um nám og störf.

Náms- og starfsráðgjafi býður upp á fræðslu í stærri og smærri hópum sem vinna að einstökum verkefnum, til dæmis vegna náms- og starfsvals, námstækni, sjálfsstyrkingu og samskiptavanda.

Náms- og starfsráðgjafi er með sjálfsstyrkingarnámskeið, Baujuna sem byggir á tilfinningavinnu. Hugmyndafræðin kemur frá Guðbjörgu Thoroddsen baujan.is
Námskeiðin eru kynjaskipt en fjórir nemendur eru í hverjum hópi.
Kennt er tvær kennslustundir á viku yfir sex vikna tímabil.