








|
- Hlutverk
náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda skólans. Námsráðgjafi
vinnur með nemendum, forráðamönnum, kennurum, skólastjórnendum og öðrum
starfsmönnum skólans að ýmiskonar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og
framtíðaráformum nemenda.
- Námsráðgjafi
er trúnaðarmaður og talsmaður nemenda. Hann er bundinn þagnarskyldu
um einkamál þeirra.
- Aðstoð
námsráðgjafa beinist að því að auka þekkingu nemenda á sjálfum sér,
viðhorfum sínum, áhuga og hæfileikum þannig að þeir fái betur notið sín í
námi og starfi.
- Allir nemendur
og forráðamenn þeirra eiga kost á að snúa sér til námsráðgjafa. Þeir geta
komið að eigin frumkvæði og milliliðalaust eða komið boðum með starfsfólki
skólans.
Náms– og
starfsráðgjöf er forvarnastarf sem fer fram í trúnaði. Hlutverki
námsráðgjafa er stundum skipt í fjóra meginflokka sem lúta að starfi sem
er: fyrirbyggjandi, græðandi, fræðandi og þroskandi.
Skólaárið 2011-2012 er náms- og starfsráðgjafi í
50% stöðu
og er við eftirfarandi daga:
Mánudaga kl. 8:10 - 16:00
Miðvikudaga kl. 8:10 - 16:00
Fimmtudaga kl. 8:10 - 12:00
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi
Netfang: johannae@sunnulaek.is |