Kennsluskipulagið í Setrinu
8.10: Samvera:
Nemendur koma saman í Setrinu og ræða það sem þeim liggur á hjarta. Ýmis fróðleikur í tengslum við athafnir daglegs lífs og samskipti í tengslum við Dagasögur. Fróðleikur og umræður í tengslum við þau þemu sem verið er að vinna með.
8.30: Áætlun:
Nemendur vinna eftir ákveðnum áætlunarbókum þar sem þeir skrá, í samvinnu við kennara/þroskaþjálfa sinn, hvað þeir stefna á að vinna mikið í hverri námsbók. Hver nemandi á teygjumöppu með gögnum sem notuð í þessari áætlunarvinnu. Umsónarkennari/þroskaþjálfi ber ábyrgð á að finna til gögn í samræmi við námsmarkmið. Gögnin eru því alltaf aðgengileg fyrir nemandann og þann sem er að aðstoða hverju sinni.
9:30: Frímínútur:
Nemendur drekka stundum nesti í frímínútum. Eldri nemendur hafa val um það að vera inni. Áhersla lögð á að yngri nemendur fari út að leika sér.
9.50 – 11. 10: Lífsleikni:
Í Lífsleiknitímum er áhersla lögð á að vinnna með athafnir daglegs lífs í tengslum við kynfræðslu, peningaþjálfun, ensku, samskiptaþjálfun og upplýsingatækni.
11. 10: Frímínútur:
Útivera eða frjáls leikur inni við.
11.30 – 12.30: SAM:
Í SAM er unnið með Samfélags- og náttúrfræði. Námið fer fram í gegnum þemavinnu þar sem áhersla er lögð á tilraunir, skapandi vinnu og vettvangsferðir.
12. 30 – 13.00: Matur
Nemendur snæða í mötuneytinu. Matartíminn er aðeins breytilegur eftir aldri nemenda og stundatöflu.
13. 00 – 14. 40: Hringekja og list- og verkgreinar:
Tvisvar í viku eru list- og verkgreinatímar sérdeildar eftir hádegi. Á móti er verkleg hringekja inn í Setri þar sem það hentar flestum nemendum okkar að takast á við verklega vinnu þegar líður á daginn.