Nóvember - desember 2011




Snóker
Setrið eignaðist þetta skemmtilega snókerspil í janúar. Nemendur eru ánægðir að geta farið í snóker í hádeginu J

Könnunarnám í Björk
Hér eru nemendur í könnunarnámi í Björk. Nemendur skoðuðu hleðsluvegg úr gömlum torfbæ, kíktu ofan í brunn og fundu jarðgöng á milli bæjar og útihúsa. Í fjósinu eru geymdir margir gamlir hlutir. Nemendur fengu það verkefni að velja sér hlut til að rannsaka og fræðast um.


Ísland áður fyrr
Frá áramótum hafa nemendur verið að vinna þemaverkefni um Ísland áður fyrr. Nemendur er að fræðast um húsagerð, klæðnað og störf í gamla daga. Nemendur eru að vinna fjölbreytt verkefni í tengslum við þetta þema. Þau eru að lesa, skrifa, vinna tölvuverkefni, fara í ratleiki, könnunarnám, spila og teikna. Gaman er að sjá hversu áhugasamir nemendur eru í þessu verkefni og gott ef hægt er að ræða saman um gamla daga heima.


Danskennsla
Íris Anna Steinarsdóttir verður með dansnámskeið hjá okkur á þriðju- og fimmtudögum í stað tónmenntar næstu 3- 4 vikurnar. Nemendur voru ánægðir í fyrsta tímanum og leyndir hæfileikar komu í ljós.

Fréttamolar 1.nóvember 2010
Kíkið endilega á nýjustu fréttamola Setursins. Hérna má sjá þá.
112 dagur
Í tilefni 112 dagsins bjuggu nemendur Setursins til myndband um skyndihjálp.
Myndbandið er hægt að skoða hérna.
Heimsókn í bókaútgáfuna Björk
Föstudaginn 6. nóvember heimsóttum við í Setrinu bókaútgáfuna Björk. Bókaútgáfan Björk er staðsett hérna á Selfossi og gefur hún meðal annars út Skemmtilegu smábarnasögurnar sem flestir þekkja. Við fengum fræðslu um það hvernig bók verður til og hvernig henni er síðan dreift í verslanir.
Allir krakkarnir fengu síðan jólabók í gjöf. Þökkum við fyrir góðar móttökur.

Hópurinn hlustar af athygli

Erlendur sagði okkur frá bókaútgáfunni

Birgir og Siggi tóku við bókagjöfinni
Mitt og þitt hlutverk
Uppeldi til ábyrgðar miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum.
Einn mikilvægur þáttur í innleiðingu á uppeldi til ábyrgðar er að skoða margvísleg hlutverk okkar í lífinu.
Í haust hafa nemendur verið að rifja upp og ræða um hlutverk sín í skólanum.
Nemendur hafa komið sér saman um að þeirra hlutverk sé að:
Mæta á réttum tíma vegna þess að stundvísi er dyggð.
Fara eftir stundatöflunni því það er nauðsynlegt að hugsa fram í tímann.
Vera kurteis því kurteisi borgar sig.
Einbeita sér til að athyglin sé í lagi.
Vera góð fyrirmynd því það er gulls ígildi.
Gott er að ræða saman um þau hlutverk sem nemendur hafa heima hjá sér.
Útskrift vor 2009
Í dag 27. maí fengu nemendur vitnisburðinn sinn fyrir 3. önn. Tveir nemendur þeir Ólafur Aron og Guðveigur voru að útskrifast úr 10. bekk. Fengu þeir afhent albúm með myndum af þeim í skólanum og eintak af stuttmyndinni "Hvert liggur leiðin". Í þeirri mynd eru þeir í aðalhlutverki. Þeir sem að vilja horfa á hana geta sótt hana hérna.
Við í Setrinu óskum útskriftardrengjunum okkar velfarnaðar í lífi og starfi og þökkum fyrir ánægjulegar stundir.

Kristín Björk afhentir þeim myndaalbúm og vitnisburð.

Flottir útskriftardrengir með foreldrum.
Sjá fleiri myndir á myndasíðu.
Vorið
Nemendur hafa verið mjög iðnir við námið á þessari síðustu önn skólaársins. Fyrir páska var verið að fræðast um alla merkisdagana í dimmbilvikunni. Ný lestrarspjöld hafa litið dagsins ljós og hafa nemendur verið að fræðast um vatn, orkugjafa, endurvinnslu, gróður og vorverk. Í samfélag– og náttúrufræði tímum eða SAMinu okkar hafa nemendur unnið á skapandi hátt með þessa efnisflokka. Í upplýsingatækni er búið að skrifa fjölmargar vorvísur og teikna fallegar vormyndir í paint forritinu.
Síðustu vikur hafa nemendur tekið þátt í margvíslegum hringekjum þar sem unnið er á stöðvum og sérstök þjálfunarverkefni unnin til að auka færni í lestri, málfræði, mælingum, peningum og að reikna í huganum.
Sjá fleiri fréttir í fréttamolum maí 2009.
Partýdagur
Í dag 2. apríl var partýdagur hérna í Setrinu. Dagurinn heppnaðist mjög vel og allir skemmtu sér konunglega. Krakkarnir fóru í gítar hero og eye toy. Síðan voru tvær bíósýningar í boði, Madagaskar 2 og Chiken run. Fyrir sýningarnar var opin sjoppa með popp, kók og nammi.

Kíkið endilega á myndir frá deginum hérna.
Himingeimurinn
Þema þessarar annar er himingeimurinn. Síðastliðnar vikur hafa nemendur unnið margvísleg
verkefni sem tengjast því.

Nemendur fundu myndir af reikistjörnunum og skrifuð fróðleik um þær

Gumma í upplýsingatækni að skrifa fróðleik um Mars

Halla að skrifa um Merkúríus

Nemendur í samfélagsfræði búa til geimskip

Allir mjög vinnusamir

Guðveigur og Magnús
Þorrinn
Í morgun komu nemendur saman í Fjallasal og sungu nokkur þorralög í tilefni dagsins.
Í hádeginu var síðan þorramatur sem nemendur borðuðu með mis mikilli lyst :-)

Fjölmenni í Fjallasal

Örlygur spilaði undir á orgel
Jólasveinarnir
Í desember unnu nemendur í tölvu og upplýsingatækni verkefni um jólasveinana. Krakkarnir lásu upp vísurnar um jólasveinana þrettán og myndskreyttu.
Hérna getið þið séð þetta frábæra verkefni hjá þeim.
Jólaferð í Alviðru
Í dag 17. desember fórum við í jólaferð að Alviðru. Við byrjuðum á því að fara í útileiki, síðan fórum við inn í hús. Þar fengum við að sjá hluti frá því í gamladaga, til dæmis ask, skeiðar, gúmmískó og jólatré. Við fengum kakó og piparkökur og sungum jólalög. Síðan var skipt upp í tvo hópa, annar fór út að skoða dýrin og hinn var inni að föndra.

Allir spenntir í rútunni

Komi í Alviðru

Í hlöðunni var hægt að sveifla sér í kaðli

Krakkarnir fengu að halda á ál

Óli gefur hestunum rúgbrauð
Sjá fleiri myndir á myndasíðunni okkar
Jólasamvera
Í morgun var jólasamvera hjá okkur. Við fengum góðan gest í heimsókn, hana Sollu sem var að vinna hjá okkur. Hún sagði okkur sögur frá jólunum hennar þegar hún var lítil stelpa í sveit.

Ásgeir og Birgir finna jólalykt
Sjá fleiri myndir á myndasíðunni okkar.
Skreytingardagur
Á föstudaginn var líf og fjör hérna í Setrinu, gamalt jólaskraut var sett upp,
nýtt búið til og piparkökur málaðar.

Allir máluðu jólatré...

.... og piparkökur.

Gamalt jólaskraut tekið upp úr kössum.
Kíkið endilega á fleiri myndir á myndasíðunni okkar.
Námsmat
Námsmatið verður með frekar óhefðbundnum hætti hérna í Setrinu þessa önn. Í gær lögðum við fyrir nemendur verkefni á ýmsum stöðum. Allir nemendur byrjuðu ferðina í rútu og síðan var lagt afstað í ferð. Upphaf hvers ferðar var í minjagripaverslun, síðan var farið á Geysi, Hellu eða á Flúðir. Myndirnar tala sínu máli !

Náttfatapartý
Í gær (30. okt) var náttfatapartý hjá nemendum Setursins. Farið var í ýmsa leiki, eins og skriðhlaup í svefnpoka, hattaleik og fataleik. Nemendur gæddu sér á ljúffengum pylsum og horfðu á skemmtilega myndbrot frá jibjab. Í lokinn var síðan slegið upp diskóteki.

Svefnpokaskrið

Hattaleikur

Fataleikur
Sjá fleiri myndir á myndasíðunni okkar
Upplestur
Í dag fengu nemendur í 7. bekk góða gesti, þau Þórarinn Eldjárn og Olgu Guðrúnu. Okkar nemendur í 7. bekk fóru og hlustuðu á þau lesa sögur og ljóð.

Þórarinn Eldjárn les upp ljóð eftir sig
Nemendur hlusta af athygli
Haustþema
Þar sem að þema þessara annar er haust höfum við í Setrinu verið dugleg að fara út og tína lauf.

Þarna eru Gunnar og Björn Eggert að tína lauf. Þeir rákust á nokkur rifsber líka.

Magnús að tína lauf.

Óli var líka duglegur að tína.

Flottir unglingar.
Hellisskógur
Í gær fórum við í vettvangsferð í Hellisskóg. Þar tíndu nemendur birkifræ. Fræin ætlum við síðan að fara með í landbúnaðarstofnun.

Krakkarnir að tína

Óli á kafi í trjám

Sigurjón og Inga í stuði

Allir voðalega duglegir

Maggi og Gumma afar einbeitt

Björn í stuði !
Snæfoksstaðir
Í dag fórum við í vettvangsferð að Snæfoksstöðum. Þar unnu krakkarnir verkefni um tré og plöntur sem þau sáu. Við rákumst líka á berjalyng og auðvita tíndum við fullt af gómsætum bláberjum, sem fóru annað hvort beint í magann eða í poka.

Spennt að leggja afstað

Almar og Kristján að skoða trén

Elvar og Hulda á röltinu

Magnús fann Hvönn

Gumma við vatnið

Björn skoðaði sandinn

Sigurjón að vaða

Það er fallegt á Snæfoksstöðum

Hvítá í baksýn

Birgir og Óli leita að berjum
Vorferð í Viðey
Vorferðin okkar í Viðey heppnaðist gríðarlega vel. Við skoðuðum Friðarsúluna og Kirkjuna, hjóluðum um eyjuna og borðuðum hamborgara í Viðeyjarstofu. Síðan sigldum við í land í yndislegu veðri.

Nálgumst eyjuna

Skoðuðum Friðarsúluna

Við sungum í kirkjunni

Krakkarnir hjóluðum um eyjuna

Borðuðum í Viðeyjarstofu

Sigldum tilbaka í yndislegu veðri - Elvar fékk að stýra.
Þemadagar
Í apríl höfum við í Setrinu verið að vinna þemaverkefni um Uppeldi til ábyrgðar. Nemendur skráðu niður sín hlutverk sem nemendur og hlutverk starfsfólks. Rætt var um mismunandi þarfir okkar. Gaman var fyrir krakkana að kortleggja sínar eigin þarfir. Krakkarnir notuðu reglurnar sem búnar voru til í haust sem grunn að þessum sáttmála :
Við erum hress, dugleg, góð og vinir
Margvísleg verkefni voru unnin t.d. farið í hljóðver til Labba og Sólargeislalagið tekið upp. Búið til myndband um lagið, farið í sund að Borg í Grímsnesi, búið til gluggalistaverk og farið á sýningu á Listasafn Árnessýslu í Hveragerði.
Kíkið endilega á nýjar myndir í myndaalbúminu okkar.
Skemmtikvöld
Fimmtudaginn 6. mars var skemmtikvöld haldið fyrir nemendur í Setrinu. Skemmtikvöldið var umbun fyrir krakkana sem voru búnir að vera duglegir að fara út í frímínútur.
Þema kvöldsins var Kántrý. Kvöldið heppnaðist gríðarlega vel og allir voru ánægðir og saddir þegar þeir fóru heim. Myndir segja meira en mörg orð, kíkið í myndaalbúmið okkar.
Öskudagur
Það var sannkölluð karnival stemming hérna í Setrinu á öskudaginn. Nemendur
og starfsfólk mætti í búningum, við bökuðum, fórum í leiki og slógum upp veislu.

Guðrún kennir Sigfúsi, Gummu og Birni að búa til karmellu

Allir önnum kafnir

Stóladans

Flottur hópur

Veislustemming
Sjá fleiri myndir í myndaalbúmi
Þorrinn
Gumma, Agnes og Kristín Lára löbbuðu um skólann í dag og tóku viðtöl
við starfsfólk skólans. Fyrst spurðu þær hvort viðkomandi borðaði þorramat
og ef svo var hvaða þorramatur væri bestur.
Hérna sjáið þið þessar frábæru fréttakonur að störfum.
Nýjar fréttir - Gaman í snjónum
Sigurjón í snjóhúsi
Óla að moka
Sigfús að búa til snjógöng
Fjör hjá Almari og Sigurjóni í snjónum
Fréttir - Janúar 2008
Jóhanna Margrét þroskaþjálfaneminn okkar fylgist með í myndmennt

Stuð í myndmennt

Óli og Gumma vinna verkefni útfrá dagasögunum

Listamaðurinn Magnús
Sjá fleiri myndir í myndaalbúmi
Jólaferð
Föstudaginn 7. des fórum við í Setrinu í jólaferð að Geysi í Haukadal. Við skoðuðum Haukadalskirkju og löbbuðum um Haukadalsskóg. Rúsínan í pylsuendanum var síðan þegar að Stekkjastaur kom og hjálpaði okkur að velja jólaatré. Eftir velheppnaða útivist fórum við til hennar Ágústu (mömmu Óla) í pítsuveislu, viljum við þakka henni Ágústu fyrir frábærar móttökur !
Hérna koma nokkrar myndir úr ferðinni.

Björn og Gunnar spenntir að leggja afstað

Hópmynd fyrir utan Haukadalskirkju

Krakkarnir búnir að finna Stekkjastaur

Sveinki var með nammi handa öllum

Síðan hjálpaði hann okkur að velja tré

Sævaldur og Sigfús með fallega tréð okkar

Eftir útiveruna fórum við í pítsuveislu

Allir borðuðu eins mikið og þeir gátu enda
svangir eftir útiveruna :-)
Sérdeild - fréttir
Núna í haust flutti sérdeild Suðurlands á nýjan stað
Sunnulækjarskóla sem er staðsettur sunnanmegin á Selfossi.
Hér koma nokkrar
myndir frá því í ágúst og september.
Verið að leika sér !

Vinnumaðurinn Magnús í eldhúsinu !


Hrafnhildur við
tölvuna sína.

Prjónað af miklum
móð!

Konsert með
kvartett - rosa fjör !!




Svona lítur
skólinn út í september









