| Sunnulækjarskóli var settur í fyrsta
sinn 23. ágúst 2004. Skólinn þjónar ört stækkandi hverfi
í suður hluta Selfoss og mun í endanlegri mynd verða
heildstæður grunnskóli. Veturinn 2009-10 verða 1. - 9. bekkur við
skólann og fjöldi nemenda um 460.
Með skólasetningu 2004 var 1. áfangi skólahúsnæðisins
tekinn í notkun og 2. áfangi var síðan tekinn í notkun
haustið 2007. Húsið teiknuðu Hilmar Þór Björnsson,
Finnur Björgvinsson og Sigríður Ólafsdóttir. Elísabet
Jóhannsdóttir gaf skólanum nafn, en efnt var til opinnar
samkeppni um að nefna hinn nýja skóla á vordögum 2004.
Hugmyndavinnan á bak við skólann var byggð á
svokölluðu "design down" ferli, þar sem einstaklingar af
ýmsum sviðum samfélagsins mynduðu samstarfshóp sem vann
að undirbúningi skólabyggingarinnar.
Umsjón með vinnu samstarfshópsins hafði Auður B.
Kristinsdóttir, ráðgjafi. |

Matsskýrsla um
fyrsta starfsár skólans |