Fréttir
Til baka

 

Júní 2010

Flott án fíknar klúbburinn verður með breyttu sniði næsta vetur þar sem félagsmiðstöðin Zelsiuz mun leiða starfið en stefnt er að allir grunnskólar í sveitafélaginu komi að verkefninu. Klúbbstjórar/tenglar verða í hverjum skóla og mun Hanna Skúladóttir vera tengill fyrir Sunnulækjarskóla. Vonandi verða sem flestir nemendur í 8.-10. bekk áfram virkir í klúbbnum sem mun bera heitið "Flott fyrirmynd".

Kærar þakkir fyrir samstarfið í vetur og njótið sumarsins sem - flott án fíknar,
Anna, Hanna og Jóhanna 

 

 

Maí 2010

Sjötíu klúbbfélagar í Flott án fíknar klúbbnum í Sunnulæk fóru í vorferð 6. maí síðastliðinn. Ferðin hófst í Eldsmiðjunni í Reykjavík á pítsahlaðborði. Að því búnu var haldið af stað til Reykjanesbæjar þar sem klúbburinn í Akurskóla var heimsóttur og farið var í félagsmiðstöðina Fjörheima sem er staðsett á gamla vallarsvæðinu. Þess má geta að klúbbfélagar söfnuðu fyrir ferðinni með kökubasar, dósasöfnun og styrkjum.
                      Bestu kveðjur,
     Anna, Hanna, Jóhanna og María M.

 

 

                Guðrún Snorradóttir frá UMFÍ kom á dögunum og kynnti klúbbastarfið í Flott án   
                fíknar ásamt þeim sem koma að klúbbnum í Sunnulæk fyrir tilvonandi 8. bekk.

 

Apríl 2010                      

                               Af óviðráðanlegum ástæðum getur Akurskóli ekki tekið á móti okkur 29. apríl n.k.
 -
Vorferðin okkar frestast því um eina viku eða til
   fimmtudagsins 6. maí.
- Sem sagt vorferðin verður 6. maí. Lagt verður af stað kl. 14:00
                                  frá Sunnulækjarskóla og komið til baka kl. 22:00.

Það verður nóg að gera hjá Flott án fíknar í Sunnulæk 6. maí, en kl. 10:30 um
m
orguninn ætlar Guðrún Snorradóttir frá UMFÍ að koma og kynna klúbbastarfið
fyrir tilvonandi 8. bekk.

 

Mars 2010

Kökubasarinn gekk mjög vel - þökkum frábærar viðtökur !!

 

Febrúar 2010

Við áttum saman notalega stund í Zelsiuz  - kíkið endilega á myndirnar - myndir 2009-2010.

17. febrúar verður öskudagshittingur fyrir klúbbfélaga Flott án fíknar
í félagsmiðstöðinni Zelsiuz, kl. 17:30-19:30.
Sjáumst hress og kát :)

 

ATH. KÖKUBASAR - föstudaginn 26. febrúar kl. 14:00 verða
klúbbfélagar Flott án fíknar
í Sunnulækjarskóla með kökubasar í Kjarnanum,
en við erum að safna fyrir vorferð.

Janúar 2010 - Gleðilegt ár -

Mæting var góð á spilakvöld Flott án fíknar klúbbsins í Sunnulæk. Kvöldið heppnaðist með ágætum og var ekki annað að sjá en að flestir hafi notið samverunnar í spilamennsku.

-- O --

Það verður spilakvöld fyrir klúbbfélaga mánudaginn 11. janúar í Sunnulæk kl. 20-22.
- Það má taka með sér gos og sælgæti.
- Takið með ykkur spil og góða skapið.

Kveðja - Anna, Hanna og Jóhanna

 

Desember 2009
 

Kæru klúbbfélagar og allir sem hafa komið að klúbbastarfinu með okkur

Um leið og við sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar bestu óskir um

gleðilega og friðsæla jóla- og nýárshátíð

viljum við þakka fyrir ánægjulegt samstarf

á árinu sem er að líða.

Megi nýja árið færa okkur

öllum friðsæld og gleði.

 

Kærar jólakveðjur,
Anna, Hanna og Jóhanna

 

Nóvember 2009
Það var mikið gaman hjá þeim sem fóru með okkur í Flott án fíknar hittinginn í leikhúsið og til Björgunarsveitarinnar. Við fengum frábærar móttökur á báðum stöðum. Klúbbfélagar fengu að skoða leikhúsið, fræddust um sögu þess og leikfélagsins, fóru í skemmtilega leiki þar sem leikrænir tilburðir unglinganna fengu að njóta sín.

Eftir leikhúsheimsóknina gengum við yfir til Björgunarsveitarinnar. Klúbbfélagar fengu að skoða bíla, báta og snjósleða sveitarinnar. Þetta var heilmikil upplifun en í lokin fengu krakkarnir að prófa börur sem sveitin notar við erfiðar aðstæður þegar þarf að sækja slasaða þar sem bílar komast ekki að. Þarna fengu krakkarnir að setja sig í spor björgunarsveitarmanna, þeim var skipt upp í tvo hópa og skiptist hver hópur á að bera en hringirnir voru þó nokkrir sem farnir voru með "slasaðan" klúbbfélaga á og þyngdin var farin að segja til sín. Þeir sem óskuðu eftir fengu að prófa að láta bera sig á börunum og voru miklir tilburðir hafðir við. 
Það kæmi ekki á óvart ef unglingum myndi ekki fjölga í unglingastarfi sveitarinnar eftir áramót. En æfingar hefjast aftur í janúar og eru á miðvikudögum kl. 20:00.

Þess má geta að myndir frá ferðinni eru komnar inn á síðuna - myndir 2009-2010

Um leið og við viljum þakka flottum klúbbfélögum í Flott án fíknar fyrir frábært kvöld þá sendum við sérstakar þakkir til Sigrúnar og Írisar í leikhúsinu sem og Heiðari og Tryggvunum tveimur í Björgunarsveitinni!!


Við Klúbbfélagar í Flott án fíknar ætlum að hittast 26. nóvember kl. 18:30 við aðalinngang Sunnulækjarskóla.

Dagskrá:
- göngum saman niður í leikhús
- þar verður tekið á móti okkur og klúbbfélagar fá tækifæri til að skoða leikhúsið o.fl........
- göngum yfir í Hjálparsveitina
- fræðumst m.a. um unglingastarf sveitarinnar........

- göngum heim um kl. 21:00.

 Hlökkum til að sjá ykkur – Anna, Hanna og Jóhanna

 

Október 2009  -  "Óvissuhittingur" fyrir klúbbfélaga og fræðslukvöld fyrir foreldra

Óvissuhittingurinn var vel sóttur af klúbbfélögum en 92 nemendur mættu. Hittingurinn var dulbúinn forvarnarfundur með léttu ívafi. Elís Kjartansson rannsóknarlögregla kom og fræddi nemendur um skaðsemi vímuefna, sakhæfi og kynferðismál svo fátt eitt sé nefnt. Ingólfur Snorrason karetekappi frá Selfossi sagði frá lífsstíl sínum en hann valdi að lifa lífinu án tóbaks og ólöglegra vímuefna - góð fyrirmynd þar á ferð. Kristín Rut nemandi í 9. bekk söng fyrir okkur Flott án fíknar sönginn sem hún og Guðfinna Rós sömdu síðast liðinn vetur. Eftir fróðlega og skemmtilega fyrirlestra birtist karl í orðsins fyllstu merkingu ásamt konu sinni sem hann kýs að klæðist að hætti múslimakvenna. Karlinn söng og dansaði fyrir nemendur en þarna voru tveir kennarar í skólanum á ferð sem brugðu sér í dulargervi og skemmtu nemendum. Að lokum var sett upp kaffihús með kertaljósi og veitingum frá Guðnabakaríi.

Kvöldið eftir óvissuhittinginn var foreldrum boðið á forvarnarfund á vegum Flott án fíknar klúbbsins. Elís Kjartansson á þakkir skyldar fyrir frábæran fyrirlestur sem var allt í senn skemmtilegur og mjög fróðlegur. Ekki var hægt að sjá annað en þeir að þeir 25 foreldrar sem mættu hefðu gagn og gaman af.

Við þökkum klúbbfélögum, foreldrum og öllum þeim sem lögðu okkur lið fyrir skemmtileg kvöld - Anna, Hanna og Jóhanna



 

2. október eru klúbbfélagar Flott án fíknar í 8. og 9. bekk Sunnulækjarskóla orðnir 102 talsins.

  • Fyrsti klúbbhittingur vetrarins verður "óvissuhittingur" í Fjallasal skólans þann 7. október kl. 19:19 . Við hvetjum alla klúbbfélaga til að mæta með góða skapið í óvissuna ............... og sjá hvað gerist........
     

  • 8. október kl. 20:00 verður fræðslufundur fyrir foreldra nemenda í 8. og 9. bekk Sunnulækjarskóla, en Elís Kjartansson lögreglufulltrúi í rannsóknardeild kemur til okkar með fræðslu um ýmsar hættur/freistingar sem geta orðið á vegi unglingsins og nauðsynlegt er að vera á varðbergi gagnvart. Einnig verður komið inn á sakhæfi og kynferðismál svo fátt eitt sé nefnt.
           ÞETTA ER FUNDUR SEM EKKERT FORELDRI ÆTTI AÐ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA.

 

September 2009
Nú styttist í það að klúbbastarfið í Flott án fíknar hefjist aftur.
Skráning í klúbbinn er hafin og geta nemendur í 8. og 9. bekk nálgast samninginn hjá klúbbstjóra, en samningurinn telst ekki gildur nema nemendur ásamt foreldrum/ forráðamönnum undirriti hann.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá klúbbstjóra - johannae@sunnulaek.is

Hlökkum til að sjá sem flesta/alla í klúbbnum,
Jóhanna, Anna Guðrún og Hanna

Verið velkomin í Flott án fíknar klúbbinn,
við erum hér og styrkjum okkar bönd.
Við njótum þess að vera hérna saman
því okkur finnst það voða gaman.
 
Flott án fíknar klúbbur erum við,
við stöndum hérna þétt hlið við hlið.
Við njótum þess að lifa og hafa gaman,
því í þessum klúbb erum við saman.
             (Höf: Kristín Rut og Guðfinna í 9. bekk)
 

 

 

 

Fréttir frá skóláárinu 2008-2009 - stofnár klúbbsins Flott án fíknar í Sunnulæk

Maí 2009 
20. maí
lukum við formlega klúbbastarfi vetrarins í Flott án fíknar í Sunnulæk. Klúbbfélagar í 8. og 9. bekk Akurskóla í Reykjanesbæ komu í heimsókn til okkar ásamt tveimur klúbbstjórum. Við hittumst öll í Stóra-helli í Hellisskógi kl. 16:00, grilluðum pylsur og gengum síðan yfir í félagsmiðstöðina Zelsiuz sem við höfðum útaf fyrir okkur til kl. 20:00. Aðstaðan var vel nýtt og var ekki annað hægt að sjá að allir skemmtu sér konunglega. Hóparnir blönduðust vel saman og er almennur áhugi að heimsækja Akurskóla á næsta skólaári.

Okkur Önnu Guðrúnu langar til að þakka fyrir skemmtilegan Flott án fíknar vetur í Sunnulæk og vonumst til að sjá alla aftur í klúbbnum næsta haust, en þá bætast einnig nýir félagar við sem við bjóðum velkomna - 8. og 9. bekkur.
                  Bestu kveðjur og njótið sumarsins, Jóhanna E. og Anna Guðrún.

 

 
 

12. maí kom Guðrún Snorradóttir landsfulltrúi forvarnarverkefnis UMFÍ “Flott án fíknar” í heimsókn og kynnti klúbbastarfið fyrir 7. bekkingum, en þeim stendur til boða að ganga í klúbbinn næsta haust. Einnig sagði Guðrún frá Unglingalandsmóti UMFÍ sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Klúbbstjóri og aðstoðarmenn í 8. bekk sögðu frá því sem gert var í klúbbnum okkar í Sunnulæk í vetur og Kristín Rut söng Flott án fíknar lagið sem hún og Guðfinna sömdu.


   
 

Tilkynning - 20. maí líkur klúbbastarfi Flott án fíknar á þessu skólaári. Klúbbfélagar í 8. og 9. bekk í Akurskóla í Reykjanesbæ ætla að koma í heimsókn til okkar :)
Ef veður leyfir þá er ætlunin að hittast í Hellisskógi kl. 16:00, grilla saman og fara í leiki, ganga síðan í Zelsiuz og skemmta okkur þar til kl. 20:00.  

 

Apríl 2009

Bíóferð fyrir klúbbfélaga Flott án fíknar 

þriðjudaginn 28. apríl kl. 18 í Selfossbíói á myndina Mall Cop.

Bíómiði + popp og kók 750 kr.

 

Mars 2009
Ellefu strákar í klúbbnum mættu á strákakvöldið í Zelsiuz og áttu skemmtilegan tíma saman þar sem ýmislegt var gert, svo sem tónlist spiluð í diskóbúri, farið í borðtennis, billiard, tölvuspil og fleira. Frábært að fá tækifæri til að nýta sér félagsmiðstöðina fyrir Flott án fíknar klúbbinn.

 

 

 

 


 


ATHUGIÐ -
Strákakvöldi í Zelsiuz er frestað til þriðjudagsins 17. mars k. 17-19. Hvetjum alla stráka í Flott án fíknar klúbbnum að mæta!!

Stelpukvöldið flaug frá okkur en stelpurnar voru önnum kafnar við að búa til hverja greiðsluna á fætur annarri. María Marons hafði í nógu að snúast við að leiðbeina við hárumhirðu og kenna ýmis góð ráð í sambandi við að krulla með sléttujárni, festa ömmuspennur og margt fleira. Bkv. María og Jóhanna E.

Mars 2009
10. mars verður stelpu- og strákakvöld fyrir klúbbfélaga
- Stelpur mæta kl. 20-22 í Sunnulækjarskóla.

María Maronsdóttir ætlar að fræða stelpurnar um umhirðu hársins og fleira tengdu því.
- Strákar mæta kl. 17-19 í félagsmiðstöðina Zelsíuz.
Unnar ætlar að koma að skipulagi kvöldsins.
               - Skemmtum okkur saman á heilbrigðan og uppbyggilegan hátt -

Febrúar 2009
Í mars ætlum við að halda stráka- og stelpukvöld fyrir klúbbfélaga í Flott án fíknar. Nánari upplýsingar koma síðarJ. Bestu kveðjur, Jóhanna Einars og Anna Guðrún.

Janúar 2009
Fimmtudaginn 22. janúar kl. 20-22 ætlum við í Flott án fíknar að spila saman í Fjallasal Sunnulækjarskóla.
Klúbbfélagar eru hvattir til að taka með sér skemmtileg spil og eitthvað til að narta í, t.d. gos, snakk eða nammi.

Spilakvöldið heppnaðist með ágætum, 39 klúbbfélagar af 60 mættu
með margskonar spil og var spilað til kl. 22:00.


 

 

 

 

 

Desember 2008
Klúbbfélagar í Flott án fíknar í Sunnulækjarskóla gistu eina nótt í skólanum 5.-6. desember. Kvöldið hófst á blindrabolta í íþróttahúsi og frjálsum tíma í boltaleikjum og á trampolíni. Eftir góða útrás í íþróttahúsi hófst kvöldvaka þar sem nemendur tróðu upp með söng og leik. Meðal annars var frumflutt Flott án fíknar lag sem tveir nemendur í skólanum sömdu, Kristín Rut Eysteinsdóttir og Guðfinna Rós Gunnarsdóttir en sú fyrrnefnda söng það. Leikritið Mjallhvít og dvergurinn var sýnt þar sem Mjallhvít fékk að dvelja hjá dverg nokkrum ef hún lofaði því að vera án tóbaks og annarra vímuefna. Freistingar urðu á vegi hennar en Mjallhvít náði að snúa á rétta braut og verða flott án fíknar. Eftir kvöldvöku var horft á mynd og laust fyrir kl. 3:00 skriðu klúbbfélagar í poka sína. Um 10 leytið morguninn eftir voru allir farnir til síns heima þreyttir en ánægðir.
Þær sem stóðu fyrir nótt í skóla voru: Anna Guðrún Steindórsdóttir sundkennari, Hanna Skúladóttir umsjónarkennari, Inga Dröfn Jónsdóttir þroskaþjálfi og Jóhanna Einarsdóttir náms- og starfsráðgjafi.

Nóvember 2008
Náttfatastemmning í Sunnulækjarskóla
 Föstudaginn 5. desember býðst klúbbfélögum – Flott án fíknar að gista eina nótt í skólanum. Klúbbfélagar þurfa að kynna sér reglur næturdvalarinnar og fá skriflegt leyfi foreldra.
Dagskrá:
5. des. 20:30 - mæting og allir koma sér fyrir
           21:00 – íþróttahús
                    - skemmtiatriði
                    -
kvikmynd
                    - frjáls tími
           03:00 – háttatími
6. des. 10:00 – allir heim eftir tiltekt.

Október 2008
Fyrsti klúbbhittingur- Flott án fíknar
heppnaðist vel, 46 klúbbfélagar í 8. bekk mættu. Kvöldið gekk út á samvinnu, allir fengu boli, nemendur elduðu og borðuðu saman við uppdekkuð borð og kertaljós í Fjallasalnum okkar. Farið var í hópleiki, nokkrir nemendur sýndu dans og tróðu upp með brandara og söng. Flott kvöld með flottum unglingum.

Október 2008
Þá er klúbburinn Flott án fíknar að fara af stað fyrir 8. bekkinga í Sunnulækjarskóla. Fyrsti fundur verður haldinn miðvikudaginn 29. október kl. 19-22. Þetta kvöld fá klúbbfélagar boli merkta Flott án fíknar, við ætlum að elda saman, fara í leiki, hlusta á tónlist og skemmta okkur saman.
Fimm nemendur í 8. bekk hafa boðið sig fram sem aðstoðarmenn: Björk Jónsdóttir, Kristín Rut Eysteinsdóttir, Magnús Bjarki Þórlindsson, Rósalind Jóhannsdóttir og Sölvi Sveinsson en þau koma að öllum undirbúningi ásamt klúbbstjóra sem er Jóhanna Einarsdóttir náms- og starfsráðgjafi en Anna Guðrún Steindórsdóttir sundkennari ætlar einnig að aðstoða okkur í vetur. Auk þess verður María Maronsdóttir heimilisfræðikennari og Inga Dröfn Jónsdóttir þroskaþjálfi með okkur á fyrsta fundinum.

Ágúst 2008
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi forvarnarverkefnis UMFÍ “Flott án fíknar” kom á vormánuðum og kynnti núverandi 8. bekkingum klúbbastarfið “Flott án fíknar”.