|
-----------------------------------------------
Skólaárið 2009 - 2010
Vikan 7.des.-11.des.
Við
höldum áfram að læra um aðventuna, við hittum vinabekki
okkar sem er 7. bekkur. Föndrum fyrir jólin og syngjum
jólalög.
Höldum áfram að vinna ýmis verkefni í íslensku og
stærðfræði.
Heimanám:Lestur.
Vikan 30.nóv.-4.desember
Í
þessari viku lærum við um aðventuna og förum í kirkju á
fimmtudag. Skreytum gluggana í stofunni og syngjum
jólalög og sálma.
Í
íslensku erum við að læra um sérnöfn og samnöfn.
Í
stærðfræði erum við að leggja saman og geyma og draga
frá.
Heimanám: Lesa,lesa,lesa.
Vikan 23. - 27. nóvember
Senn
líður að jólum og við erum byrjuð í kristinfræði.
Þar erum við að lesa sögur úr Gamla testamentinu
og munum síðan læra um aðventuna.
Í
íslensku erum við að læra um nafnorð, sérnöfn - samnöfn.
Í stærðfræði erum við að læra um flatarmál og ummál,
ólík form ásamt hefðbundnum reikniaðgerðum.
Við
fáum heimsókn frá Brunavörnum Árnessýslu, en þeir koma
árlega í heimsókn í skólann og heilsa uppá 3. bekkinga.
Á
föstudaginn verður skreytingardagur í skólanum.
Hefðbundið skólastarf fellur niður og við skreytum
skólann okkar. Það er í boði að koma með
sparinesti ( ekki gos eða nammi ) t.d. smákökur og
snúða.
Heimanám þessa viku er blað með orðadæmum og
lesskilningsverkefni. Þessu skal skila fimmtudaginn 26.
nóvember.
Skólaárið 2008-2009
Gleðilegt sumar og takk fyrir skemmtilegan vetur!
Hafið það sem allra best og sjáumst hress í haust :-)
Bestu kveðjur,
Steinunn Alda, Tinna og Valgerður
Vikan 19.-22.maí.
Við höldum
áfram með vorþema og tengjum það íslenskuvinnu. Erum að
taka til og klára ýmis verkefni. Ef veður er gott ætlum
við að nota það til útiveru og læra um vorið.
Heimanám:
Lestur og stílabók.
Vikan 11.-15. maí
Við höldum áfram að vinna með
vorið, lærum um farfuglana, syngjum vorlög og lesum
vorljóð. Í stærðfræði vinnum við með mælingar og
munstur.Námsmat verður áfram í þessari viku.
Heimanám : Lestur og
stílabók/vinnubók.
Vikan 4. - 8. maí
Við ætlum að byrja
að vinna með vorþema og tengjum það íslenskuvinnu. Í
stærðfræði erum við að vinna með hundruð, tugi og
einingar og mælingar. Við erum einnig farin að huga að
námsmati.
Heimanám vikunnar: Lestur +
stílabók/vinnubók. Einnig er lesskilningsverkefni
sem fer heim á mánudaginn og á að skila á föstudeginum
8. maí.
Vikan 27. apríl - 1. maí
Gleðilegt sumar!
Við höldum áfram að vinna með lesskilning í íslensku og
mælingar og samlagningu tuga í stærðfræði.
Miðvikudaginn 29. apríl verða bekkjarmyndatökur. Til að
panta bekkjarmynd og/eða einstaklingsmyndir er
nauðsynlegt er að skila skráningarblaði og kvittun með
til umsjónarkennara í síðasta lagi þriðjudaginn 28.
apríl. Að öðrum kosti er litið svo á að ekkert sé pantað
fyrir það barn.
Föstudaginn 1. maí er frí í skólanum og skólavistun
lokuð.
Heimanám vikunnar: Aðaláhersla lögð á lestur og
vinnu í stílabók/vinnubók.
Vikan 20. apríl - 24. apríl
Sumardagurinn fyrsti
er frídagur og daginn eftir er Íþróttadagur í skólanum
(vera klædd eftir veðri og hafa nesti í léttum bakpoka).
Í stærðfræði erum
við að vinna með mælingar og samlagningu tuga. Í
íslensku erum við að leggja áherslu á lestur og
lesskilning á fjölbreyttan hátt.
Heimanám vikunnar:
Lestur og stílabók/vinnubók og Línan 1-4 bls. hámark.
Gleðilega páska!
Við héldum árshátíðina okkar í morgun í Baulu. Þar voru
3 leikrit á dagskrá og í lokin söng allur hópurinn saman
tvö lög. Allir stóðu sig með mikilli prýði og þökkum við
öllum sem komu að horfa á okkur kærlega fyrir komuna.
Nú tekur við páskafrí en skólinn byrjar aftur
þriðjudaginn 14. apríl.
Vikan 30. mars - 3. apríl
Við erum á fullu að æfa fyrir árshátíðina en hún verður
föstudaginn 3. apríl kl. 10 í Baulu (íþróttahúsinu).
Við ætlum að lesa og læra um páskana í kristinfræði og
vinnum áfram í stærðfræði og íslensku.
Tinna er í burtu vegna skólans 3 daga í næstu viku.
Heimanám vikunnar: Við leggjum alla áherslu á að
börnin lesi á hverjum degi heima og vinni í
stílabók/vinnubók.
Vikan 23. - 27. mars
Þessi vika verður helguð árshátíðarundirbúningi. Nákvæm
tímasetning á árshátíðinni sjálfri verður auglýst síðar.
Heimanám vikunnar: Við leggjum alla áherslu á lestur og stílabækur/vinnubækur þessa vikuna.
Endilega látið umsjónarkennara vita þegar stílabækurnar
klárast. Ekki verður annað heimanám í þessari viku.
Ath! Nýtt
heimanám kemur heim á föstudögum og skilist á
fimmtudögum.
Vikan 16. - 20. mars
Við höldum áfram að vinna með ljóð og málshætti tengda
veðrinu.
Í
stærðfræði erum við enn að vinna með mínusinn og
hitamælingar.
Heimanám vikunnar: Allir eiga að vinna bls. 2 og
3 í Línunni, þeir sem klára það auðveldlega mega
gera bls. 4 og 5 líka. Einnig er lestur og
stílabók/vinnubók.
Vikan 9. - 13. mars
Íslenskuvinna þessarar viku tengist veðurþemanu sem við
erum að vinna í núna. Við ætlum að skoða ljóð og
málshætti tengda veðrinu. Gaman væri að horfa á veðurfréttir
og ræða um veðrið og veðurspánna.
Í
stærðfræðinni höldum við áfram með mínusinn og aðra
stærðfræðivinnu.
Heimanám vikunnar: Við leggjum áherslu á LESTURINN (lágmark 5 sinnum í viku) og að skrifa
í stílabókina eða vinna í vinnubók (þeir sem eru með
vinnubók mega geyma stílabókina í bili). Ekki verður
annað heimanám í þessari viku.
Ath! Nýtt
heimanám kemur heim á föstudögum og skilist á
fimmtudögum.
Vikan 2. - 6. mars
Á
mánudaginn 2. mars verða foreldraviðtöl.
Hefðbundið skólastarf liggur niðri en nemendur mæta með
foreldrum og hitta umsjónarkennarann sinn.
Í
stærðfræðinni ætlum við að einbeita okkur að mínus,
ásamt því að rifja stöðugt upp tugakerfið.
Við erum einnig að spá í veðrið og hvað það hefur uppá
að bjóða.
Heimanám vikunnar er stærðfræði, sögubók og lestur.
Í sögubók skal segja frá skemmtilegum
furðufatadegi/öskudegi.
Vikan 23. - 27.
febrúar
Enn vinnum við í námsmati.
Á
bolludaginn má koma með bollur í nesti.
Á
öskudeginum er starfsdagur og þá mæta nemendur ekki í
skólann.
Föstudaginn 27. febrúar verður furðufatadagur og þá mega
nemendur koma í búningum í skólann.
Heimanám í þessari viku er lestur, stílabók og
skriftarbók. Lágmark 1 bls en hámark 4 bls.
Vikan 16. - 20.
febrúar
Við erum að vinna áfram í námsmati og vinnum áfram með
veðurþemað. Í stærðfræðinni erum við að vinna með
hundruð, tugi og einingar og erum að æfa okkur í að
reikna með hjálp 100 talna töflu.
Heimanám í þessari viku er lestur, stílabók og sögubók
(fyrirmæli inni í bókinni).
Vikan 9. - 13.
febrúar
Nú er námsmat framundan og vinnum við það jafnt og þétt
með annarri vinnu. Næsta þemaverkefni verður veðurfar í
víðum skilningi og munum við byrja á því í næstu viku. Í
stærðfræði höldum við áfram með hundruð, tugi og
einingar og samlagningu.
Heimanám í þessari viku er lestur, stílabók og 3
verkefnablöð með talnalínu.
Vikan 2. - 6.
febrúar
Við ætlum að ljúka umfjöllun okkar um árstíðirnar, gömlu
mánaðaheitin og þorrann. Þessa vikuna erum við að vinna
með hundruð, tugi og einingar, teljum peninga og leggjum
saman í talnahúsi.
Heimanám vikunnar er 2 blöð í stærðfræði, lestur og
stílabók.
Vikan 26. - 30.
janúar
Í
íslensku erum við enn að vinna með árstíðirnar og ætlum
að skoða gömlu mánaðarheitin, sögur og hjátrú því tengt.
Þorrinn er byrjaður, við syngjum þorralög og skoðum
gamla matargerð ;-)
Heimanám vikunnar er sögubók, skrifa sögu um veturinn og
lestur.
Vikan 19. - 23.
janúar
Nú erum við að skoða mánuði, vikur og daga í
stærðfræðinni. Við erum að byrja með Einingu 4 og
vinnum með árstíðirnar í samfélagsfræði og íslensku.
Heimavinna er lestur og skrifa í stílabók.
Vikan 12. - 16.
janúar
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gott samstarf á liðnu
ári. Við erum að koma okkur í gang eftir gott frí og
ýmislegt skemmtilegt þarf að ræða eftir jólafríið :-)
Við erum að vinna með þrettándann og allt sem tengist
honum, álfa og sögur þeim tengdum. Þessi vinna heldur áfram í þessari viku. Í
stærðfræði stefnum við á að klára Einingu 3.
Við minnum á lesturinn og stílabókina.
Vikan 15. - 19.
desember
Við höldum áfram að vinna með jólasveinana og boðskap
jólanna þ.e. fæðingu frelsarans. Á
þriðjudeginum 16. desember förum við í kirkjuheimsókn
kl: 11.30. Á fimmtudeginum 18. des ætlum við að
horfa á videó með 1. bekk. Þennan dag verður
einnig í boði að koma með jólasmákökur í nesti.
Við höfum eignast vini í 6. bekk og með þeim förum við í
söngstund á þriðjudagsmorgninum og munum einnig dansa
með þeim á jólaballinu.
Litlu jólin verða föstudaginn 19. des.
kl: 10 -
11.45.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla með kærum þökkum
fyrir gott samstarf á árinu. Sjáumst aftur 6.
janúar 2009.
Vikan 8. - 12.
desember
Ferðin í Alviðru tókst mjög vel hjá öllum hópum.
Þar var margt skemmtilegt að sjá, m.a. fengu nemendur að
handfjatla ál, bleikjur og kanínur sem þarna eiga heima.
Skemmtilegur jólahlutur var föndraður og á hann kannski
eftir að rata í einhverja jólapakka ;-) Við fengum
okkur göngutúr upp í hlíðar Ingólfsfjalls og hlustuðum
eftir álfum sem búa þar í steinum.
Við vinnum áfram með kristinfræðina og boðskap jólanna,
föndrum, syngjum og eigum notalega daga.
Við höfum eignast vini í 6. bekk og ætlum að hitta þá í
vikunni.
Söngstund í Fjallasal verður á miðvikudagsmorgun, en þá
hittist allur skólinn og syngur saman jólalög.
Þrátt fyrir jólaundirbúning er nauðsynlegt að allir lesi
heima á hverjum degi og skrifi orð í stílabókina sína.
Vikan 1. - 5.
desember
Við vinnum áfram í stærðfræði og íslensku munum við lesa
jólasögur og syngja jólalög. Í kristinfræði byrjum við
að lesa um aðventuna og boðskap jólanna.
Við ætlum að fara í Alviðru í spennandi jóladagskrá
síðustu þrjá daga vikunnar. Nauðsynlegt er að allir séu
með nesti, t.d. drykk og samloku.
Lagt verður af stað um 8:30 og komið heim kl. 12 (ca.).
Miðvikudaginn 3. des fara Sverðfiskar Fimmtudaginn 4. des fara Vatnableikjur Föstudaginn 5. des fara Geddur
Tinna umsjónarkennari í Geddum verður í fríi v/jólaprófa
á miðvikudag og fimmtudag.
Síðasta heimanámið fyrir jól er stærðfræðiblað í grænu
möppunni.
Vikan 24. - 28.
nóvember
Við höldum aðeins áfram með geimverurnar og geiminn og
með því ætlum við að skoða og rifja upp -ei- og -ey-.
Föstudaginn 28. nóvember er skreytingardagur og þá
verður skólinn skreyttur hátt og lágt. Við vonum að
sjálfsögðu að foreldrar sjái sér fært að kíkja á okkur
og eiga góða samverustund með börnunum í skólanum.
Heimanám þessa viku er lestur og lestrarverkefnið -
lágmark 2-3 skipti í stílabókina. Einnig fer sögubókin
heim og í hana á að skrifa sögu um geimveru.
Vikan 17. - 21.
nóvember
Mánudaginn 17. nóvember er foreldradagur og mæta
nemendur með foreldrum sínum í viðtal hjá
umsjónarkennara.
Á
þriðjudeginum hefjum við miðönnina. Við ætlum að vinna
meira með geimverur og lesa bókina BéTveir.
Heimanám er lestur og lestrarverkefni í stílabók (kynnt
í foreldraviðtali).
Vikan 10. - 14.
nóvember
Þessa vikuna erum við í námsmati í íslensku og
stærðfræði.
Ýmsir viðburðir verða hjá okkur í næstu viku.
Mánudaginn 10. nóvember mun Sunnulækjarskóli byrja á að
bjóða nemendum upp á hafragraut í morgunmat. Grauturinn
góði er í boði frá kl. 7:50-8:05, þannig að allir ættu
að komast svo á réttum tíma inn í fyrsta tíma kl. 8:10.
Hafragrauturinn er ókeypis fyrir nemendur.
Þriðjudaginn 11. nóvember fáum við skáld í heimsókn, en
þá koma Kristín Helga Gunnarsdóttir og Halldór
Baldursson til okkar og ræða um Fíusól.
Starfsdagur verður 13. nóvember, þann dag fellur kennsla
niður.
Föstudaginn 14. nóvember er Tónlist fyrir alla og þá
kemur Eyjólfur G. Eyvindsson í heimsókn til okkar.
Heimanám þessa vikuna er lestur og í sögubók á að skrifa
sögu um góðan vin.
Vikan 3. - 7.
nóvember
Í
síðustu viku unnum við Rauða kross verkefnið.
Aðilar frá Rauða krossinum komu og fylgdust með og ræddu
við nemendur. Verkefnið gekk mjög vel og höfðu
aðstandendur verkefnisins það á orði hversu prúð og þæg
nemendur hefðu verið :-)
Í
stærðfræðinni erum við að æfa okkur í frádrætti og að
leggja saman tugi.
Heimanám vikunnar eru stærðfræðiblöð þar sem nemendur
þurfa að leggja saman og draga frá. Til að
öðlast sem bestan talnaskilning er best að láta nemendur
teikna, telja og skrá dæmin.
Vikan 27. - 31.
október
Á
mánudeginum 27. október er vetrarfrí.
Í
síðustu viku fengu kennarar skólans heimsókn frá Rauða
krossinum. Markmið heimsóknarinnar var að fara í
gegnum verkefni sem við ætlum að vinna með nemendum
skólans á þriðjudaginn 28 okt. Verkefni þetta
miðar að því kenna börnum að vinna sig útúr erfiðum
tilfinningum sem geta sótt á okkur t.d. í kjölfar
jarðskjálfta.
Enn verðum við að vinna verkefni tengd Uppeldi til
ábyrgðar. Nú þegar höfum við farið með nemendum í
gegnum hlutverk hvers og eins, hvert er hlutverk
kennarans og hvert er hlutverk nemandans.
Ekkert heimanám verður þessa viku. Tinna
umsjónarkennari hjá Geddum verður fjarverandi vegna
skólans þessa viku. Steinunn og Valgerður verða
með Geddurnar.
Myndir af dótadeginum eru komnar á heimasíðuna okkar .
Hafið það gott í vetrarfríinu og vonandi koma allir
endurnærðir til starfa á þriðjudaginn.
Vikan 20. - 24. október
Í
stærðfræði ætlum við að halda áfram með flokkun,
mælingar og form. Í íslensku erum við að rifja upp stafi
og hljóð. Við erum líka að æfa okkur áfram í ritun,
skrift og ljóðum. Við höldum áfram að vinna með Uppeldi
til ábyrgðar. Upplagt er að ræða heima hvert hlutverk
nemanda er og af hverju erum við að ganga í skóla.
Vetrarfrí hefst í næstu viku á föstudeginum 24. október
og til mánudagsins 27. október. Við minnum á að
Skólavistun er lokuð þessa daga.
Heimanám vikunnar er 1 skriftarblað og 2 stærðfræðiblöð.
Skila á fimmtudaginn.
Vikan 13. - 17. október
Í
stærðfræðinni erum við að vinna með flokkun, mælingar og
form. Í íslensku vinnum við áfram með ritun,
skrift og ljóð. Í samfélagsfræði ætlum við
að vinna verkefni út frá Uppeldi til ábyrgðar s.s. búa
til bekkjarreglur og ræða hlutverk nemenda og kennara.
Heimanám vikunnar er lestur í lestrarbók og sögubók á að
skrifa sögu um myndina sem búið er að líma inn.
Vikan 6. - 10. október
Enn
erum við að vinna með mælingar og vasareikna í
stærðfræði. Í íslensku erum við að vinna með skriftina,
áhersla er lögð á að draga rétt til stafs og rétt
hlutfall stafa (hástafi h, l, k og lágstafi a, e, g
o.fl.). Við erum að þjálfa okkur í ritun, stór
stafur, lítill stafur, bil á milli orða og punktur.
Við ætlum að læra vísuna "Runki fór í réttirnar" í
skólanum.
Heimanám vikunnar eru tvö blöð í stærðfræði og eitt í
skrift. Við hvetjum ykkur til að lesa a.m.k. fimm
sinnum í viku.
Vikan 29. september - 3. október
Við
erum að ljúka haustþemanu í þessari viku. Í stærðfræði vinnum við áfram með tölur og
talnaskilning, vasareikni og mælingar. Í íslensku höldum við áfram með stóran staf, punkt og
bil á milli orða og bætum við spurningamerkinu.
Við minnum á heimalesturinn og heimanámið, sem er
frjálst í sögubók og stærðfræðiblöð. Skila á
fimmtudögum.
Vikan 22. - 26. september
Við
erum að vinna áfram með haustið og haustverkin. Í
stærðfræði erum við að vinna með tölur upp í 50. Í
íslensku leggjum við áherslu á stóran staf, punkt og bil
á milli orða.
Haustþing kennara er á föstudag og þann fellur skóli
niður.
Vikan 15. - 20. september
Í
þessari viku ætlum við að læra um haustið og haustverk,
fara út í rigninguna :-) í göngutúra, leiki og skapandi
starf. Í stærðfræði erum við að vinna með súlurit,
talningu, plús og mínus. Í íslensku erum við að skrifa
sögur og ljóð um haust.
Munið eftir að lesa heima og í þessari viku eru skil á
fyrsta heimanámi, sem er sögubók. Heimanám fer heim á
föstudögum og skilist á fimmtudögum viku síðar.
Vikan 8. - 12. september
Nú
eru allir komnir með lestrarbók og við hvetjum ykkur til
að vera dugleg að láta nemendur lesa heima.
Við erum að vinna með haustið og erum að komast í gang
með stærðfræði- og íslenskuvinnu. Innileikfimi hefst í þessari viku, leikfimisföt og
handklæði verða því að fylgja nemendum þá daga.
Nauðsynlegt er að merkja allt sem hægt er að merkja.
Þar sem margir eru í eins göllum og jafnvel ómerktum er
gott að merkja með merkitússi á hvítu miðana innaná. Sundpokar eru margir eins og því gott að skrifa nafn
barns utaná pokann.
Vikan 18. - 22. ágúst
Velkomin aftur í skólann! Á morgun er skólasetning og
eiga börnin í 2. bekk að mæta kl. 9:00. Skóli hefst
síðan skv. stundatöflu föstudaginn 22. ágúst.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Steinunn, Tinna og Valgerður
-----------------------------------------------
Skólaárið 2007-2008
Vikan 12.- 16. maí
Mánudagurinn 12. maí er annar í hvítasunnu og því
frí í skólanum. Við erum að klára þemað um
líkamann. Við erum líka að læra au og ei.
Við taka ýmis vortengd verkefni. Föstudaginn
16. maí er íþróttadagur í skólanum, nánari upplýsingar
koma er nær dregur. Heimanámi er hér með lokið í vetur,
við minnum samt á að nauðsynlegt er að lesa á hverjum
degi til skólaloka.
Vikan 5.-9. maí.
Í
Þessari viku vinnum við áfram með líkamann og lærum ýmis
hugtök og heiti tengt honum. Í stærðfræði erum við að
vinna með samlagningu og frádrátt.
Heimanám vikunnar eru tvö stærðfræðiblöð. Allir að muna
að lesa heima.
Vikan 21.-25.apríl
Í
næstu viku verður þemaverkefni allsráðandi.
Við ætlum að einbeita okkur að því hvernig við viljum að
skólinn okkar sé, að öllum líði vel og hver og einn beri
ábyrgð á eigin hegðun, sem er samkvæmt verkefni því sem
skólinn vinnur að. Verkefnið kallast "Uppeldi til
ábyrgðar" .
Heimanám vikunnar er sögubók. Sagan á að fjalla um
vináttuna í máli og mynd. Muna að lesa heima :-)
Vikan 14.-18. apríl.
Við vinnum áfram með líkamann og
lærum um hendur og fætur og skoðum ýmsa málshætti sem
tengjast því. Í stærðfræði erum við að læra um mínus.Í
íslensku vinnum við áfram með söguna "Dýrin í
Tónadal".
Heimavinnan er stærðfræðiblað og það
er mikilvægt að teikna og skrá vegna þess að síðar verða
flóknari verkefni.Og allir að muna að lesa.
Vikan 7. - 11. apríl
Vinna með líkamann heldur áfram. Í stærðfræði erum
að kynna fyrir nemendum merkið mínus og hvað það stendur
fyrir. Nýja lesbókin okkar heitir "Dýrin í
Tónadal" og þar erum við að skoða og læra y og
ý.
Heimavinna þessa viku er stærðfræðiblað.
Nauðsynlegt er að lesa yfir dæmin með nemendum til að
tryggja að þau skilji til hvers er ætlast. Skil á
heimavinnu er 10. apríl. Við minnum á að allir
þurfa að láta lesa einu sinni á dag.
Vikan 31. mars - 4. apríl
Þessa viku verðum við að vinna áfram með líkamann.
Við ætlum að tala um beinagrindina og innri líffæri.
Við skoðum líka lengdir, fæðingarlengdina okkar og
núverandi lengd og mælum ýmsa hluti í sentimetrum.
Vikan 10. - 14. mars
Þessi vika fer að mestu í árshátíðarundirbúning og
verður sýning miðvikudaginn 12. mars kl: 10.30 í
íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Foreldar eru
velkomnir ásamt ömmum og öfum.
Við
ætlum líka að vinna áfram með bókstafinn e og svo
föndrum við eitthvað páskalegt.
Vikan 3. - 7. mars
Við
þökkum ykkur fyrir góð og gagnleg viðtöl á foreldradegi.
Við verðum að vinna með líkamann þessa viku og ætlum að
skoða betur húðina okkar og frumur. Einnig ætlum
við að læra stafinn e.
Nú
byrjum við á heimanámi sem afhendist á föstudögum og á
að skila á fimmtudegi viku seinna. Heimanám
þessarar viku er upplýsingasöfnun um lengd og þyngd við
fæðingu, gaman er ef allir koma með mynd af sér
nýfæddum/nýfæddri, og eitt stærðfræðiblað þar sem verið
er að æfa merkin "minna en og "meira en" og munið
að Goggi gráðugi vill alltaf borða stóru töluna.
Heimanámi á að skila í síðasta lagi 6. mars.
Vikan 25. - 29. febrúar.
Á
mánudeginum 25. febrúar eru foreldraviðtöl.
Við ætlum að læra stafina ú og ð í vikunni.
Við erum að byrja þemaverkefni um líkamann, þar sem
unnið verður á fjölbreyttan hátt. Í stærðfræði
skoðum við tölur, talningu og skráningu.
Heimavinna kemur heim í fyrsta sinn á föstudag og verður
þannig framvegis.
Vikan 18.-22. febrúar.
Þessa viku ætlum við að læra stafina
þ og ö
og lesa ljóðið Sögull og Þögull eftir Þórarinn
Eldjárn. Unnið verður með ljóðið og stafina á ýmsan
hátt. Anna Guðríður hjúkrunarfræðingur kemur til okkar
að fræða okkur um tannvernd og síðan verður unnið þema
um "líkamann" á næstu vikum. Í stærðfr. erum við að
skoða tugi og einingar.
Vikan 11. -
15. febrúar
Þessa vikuna erum
við að vinna í námsmati. Við tökum læsiskönnun og
könnum stærðfræði. Á mánudaginn er 1 1 2 dagurinn
og þá koma til okkar hjúkrunarfræðingar og fræða okkur
um fyrstu hjálp.
Vikan 4. - 8.
febrúar
Það verður mikið um
að vera í þessari viku. Við höldum áfram með
söguna "Afi minn í sveitinni" og vinnum með stafina
u
og x út frá henni. Í stærðfræði vinnum við áfram
með samlagningu, talningu og skráningu. Öskudagurinn
verður fjörugur. Allir eru hvattir til að koma í
búningum í skólann og við verðum með leiki og fjör hér á
svæðinu okkar.
Vikan
28.janúar - 1.febrúar
Við byrjum á nýrri
gæðasögu sem er að þessu sinni Afi minn í sveitinni. Við
vinnum
með stafina æ og d í þessari viku og
þjálfum lestur á ýmsan hátt. Álfaverkefnið er að
klárast og börnin hafa þegar gert sér álfa úr
leir
sem þau mála í þessari viku og koma fyrir í
álfabyggðinni okkar.
Í
stærðfræði vinnum við með talningu og skráningu. Í
síðustu viku vorum við að vinna með peninga. Við
hvetjum ykkur til að eiga smápeninga í krukku og lofa
börnunum að telja þá og átta sig á gildi þeirra.
Vikan 21. -
25. janúar 2008.
Við höldum áfram að
vinna með söguna "Gunnhildur og Glói" og leggjum inn
stafina n og g. Við vinnum áfram í
álfaverkefninu og erum að þjálfa lestur á ýmsan hátt.
Við minnum á mikilvægi þess að láta þau börn sem eru með
lestrarbók lesa heima. Einnig er mjög
mikilvægt að halda áfram að lesa bækur fyrir börnin og
ræða innhaldið og e.t.v. útskýra orðin sem koma fyrir.
Í stærðfræði erum við að æfa samlagningu og ýmislegt
fleiri.
Vikan 14.-18.
janúar.
Við ætlum að lesa
nýja sögu" Gunnhildur og Glói"og læra stafina
é og v. Við vinnum áfram með álfaþema og heimsækjum
Álfa og tröllasafnið á Stokkseyri föstudaginn 18.
jan. Í stærðfræði erum við að vinna með einingar og tugi
og erum að æfa okkur að leggja saman tölur undir 10.
Vikan 7. -
11. janúar 2008
Gleðilegt ár og takk
fyrir það gamla. Þökkum gott samstarf á liðnu ári.
Nú á nýju ári hefur fjölgað um tvo nemendur hjá okkur.
Kolbrún Björk bættist í hóp Sverðfiska og Tómas Örn í
hóp Gedda. Við bjóðum þau velkomin. Þessa
vikuna verður hjá okkur álfaþema og við ætlum að læra
stafinn f.
Vikan 17.-20.
des.
Við höldum áfram að vinna með boðskap jólanna. Föndrum
og höfum frið og ró. Á fimmtudaginn verða litlu jólin
kl.10. Þá sjáum við helgileik og dönsum í kringum
jólatré. Við fáum kakó og flatbrauð. Skólinn er búinn
kl. 12. En þau sem eru á skólavist fá að borða þar.
Skólinn hefst aftur 4.jan. Bestu óskir um Gleðileg
jól. Þökkum samstarfið.
Vikan 10.-14.
desember.
Við vinnum
áfram með stafina. Við ætlum að læra um aðventuna og
boðskap jólanna. Á miðvikudaginn förum við í
kirkjuna og hittum sóknarprestinn okkar. Á fimmtudaginn
kemur 5. bekkur í heimsókn og verður okkar vinabekkur. Á
föstudaginn ætlum við að skoða Álfa og tröllasafnið á
Stokkseyri. Síðan munum við hafa rólegheit og rifja upp
jólalögin.
Vikan 3. - 7.
desember.
Við ætlum að lesa
jólasögu fyrir nemendur og nota hana til að kynna
stafina
b og j. Í Einingu vinnum við
með raðtölur og speglun. Upplagt umræðuefni heima
er að ræða um jólasveinana hver kemur fyrstur og
hver er annar o.s.frv. Hjúkrunarfræðingur
kemur og gefur öllum flúor. Við ætlum að skreyta
allt rýmið okkar og munum kappkosta við að hafa allt á
rólegum nótum.
Vikan 26. -
30. nóvember.
Við ætlum að lesa
nýjar bækur í hópunum. Við verðum að vinna með
stafina h, p, b og j, ásamt þekktum
sérhljóðum fram að jólum. Í Einingu byrjum við á
jólaþemanu og tökum fyrir raðtölur. Við tökum
einnig fyrir mynstur og speglun.
Á fimmtudeginum förum við í heimsókn í Setrið, við
hittum krakkana sem eru þar og föndrum stjörnur.
Á föstudeginum ætlum við að vinna með 2. og 3. bekk við
að skreyta gluggana í Klettum
(stjórnunarálma skólans).
Vikan
19.-23.nóvember
Við ætlum að lesa
nýja bók og læra stafinn h, við vinnum með hann á ýmsan
hátt og rifjum upp aðra stafi. Í stærðfræði erum við að
vinna með samlagningu (+ og =). Einnig ætlum við að vera
dugleg í lísleikni t.d. æfa að rétta upp hönd og tala
einn í einu, hlusta á aðra og segja frá. Síðan rifjum
við upp bekkjarreglur sem hópurinn kom sér saman um.
Vikan 12. -
16. nóvember
Við ætlum að vinna
áfram með bókstafina k og i. Á
miðvikudeginum verður frí hjá nemendum vegna starfsdags
kennara sem verða þá að vinna í námsmati.
Á föstudeginum er Dagur íslenskrar tungu og þá munum við
kynna ljóðskáldið Jónas Hallgrímsson og kenna þeim vísu
eftir hann. Þennan dag verður einnig dótadagur, þá
má hver nemandi koma með eitt leikfang. Stærð
leikfangsins miðast við að það komist ofan í skólatösku.
Athugið að senda nemendur ekki með viðkvæm leikföng.
Vikan
5.-9.nóvember
Við lesum nýja bók
sem heitir, Kerling vill hafa eitthvað fyrir snúð sinn.
Við ætlum að læra stafina k og i. Í
stærðfræðinni erum við að læra um hugtökin minna
en,stærra en og jafnt og. Gott væri að
ræða þessi hugtök heima. Í þessari viku og næstu
verður kennaraneminn Helga Bergsdóttir í læri hjá
Sverðfiskum.
Vikan 29.
október - 2. nóvember
Þegar við komum úr
vetrarfríi höldum við áfram að vinna með stafina t
og o. Höldum áfram að vinna í Einingu.
Vikan 22. -
26. október
Við lesum nýjan
texta sem er þulan
"Einn og tveir". Við ætlum að
læra stafina t og o og ræða um
orðin sem koma fyrir í þulunni. Við vinnum með
stafina á ýmsan hátt. Vinnum áfram með Einingu og
þar erum við að skoða tölur og talnagildi.
Leikskólakennaranemar koma til okkar og verða frá
mánudegi til fimmtudags. Á föstudeginum er
vetrarfrí :-)
Vikan 15. -
19. október
Við höldum áfram að
vinna með á og r á margan skemmtilegan máta. Í
stærðfræði eru við að vinna með talningu, talnagildi og
tölur. Byrjum á Einingu eða apabókinni sem þau
kjósa að kalla hana :-). Förum í göngutúr og æfum
okkur í umferðareglum og leikum okkur. Erum að
móta okkar bekkjarreglur og æfa okkur í umgengni í
mötuneyti.
Á mánudeginum koma
til okkar tveir kennaranemar Helga og Hrönn, þær koma úr
Þorlákshöfn. Þær verða hjá okkur næstu fimm vikur
og munu mestmegnis vera með Gunnhildi og hennar hóp.
Vikan 8. -
12. október 2007
Við tökum fyrir nýja
gæðasögu og leggjum inn stafina á og r.
Fjölbreytt vinna verður í sambandi við þá t.d.
ávaxtastimplun. Við ætlum að skoða vel hvað orð
er, setning, punktur og spurningarmerki.
Á þriðjudeginum fáum við fjóra
leikskólakennaranema frá Háskólanum á Akureyri í
heimsókn. Við höldum áfram í talnaskrift.
Vikan 1. - 5.
október 2007
Við ætlum að vinna
áfram með söguna "En hvað það var skrýtið" á mjög
fjölbreyttan hátt s.s. með orðabingó, samtæðuspili,
orðaskuggum og föndra stafina a og m.
Við ætlum að æfa talnaskrift upp í 10 og þeir sem eru
lengra komnir æfa það. Við þjálfum áfram + og =.
Áframhaldandi vinna með haustið og þuluna "Karl tók til
orða".
Vikan 24. -
28. september 2007
Í þessari viku ætlum
við að lesa söguna En hvað það var skrýtið og vinna út
frá henni með stafina m og a. Sagan býður upp á
vinnu með rím. Í stærðfræðinni ljúka við Kátt er í
Kynjadal sem ekki tókst að klár í síðustu viku.
Einnig ætlum við að vinna með hugtökin + og =. Við ætlum
okkur að nota haustið og fara út og tína laufblöð og
vinna með þau. Þula vikunnar er
Karl tók til orða.
Á föstudaginn
fáum við gesti. Andrea Gylfadóttir og Björn
Thoroddsen koma og syngja fyrir okkur.
Vikan 17. -
21. september 2007
Í þessari viku
ætlum við að fara út og tína laufblöð og finna smádýr
sem við skoðum síðan og vinnum úr. Við vinnum
áfram með stafina s, l, ó og í.
Við höfum lesið bókina "Tumi og Tóta" og vinnum áfram
með hana þ.e. skoðum hugtök og merkingu ýmissa orða sem
þar koma fyrir og leitum að stöfunum sem við höfum lært
innan textans.
Kátt er í
Kynjadal (stærðfræðibók), stefnum á að ljúka þeirra bók
í vikunni.
Föstudaginn 21.
september er frí í skólanum vegna þings kennara á
Flúðum.
Þriðjudagur 4. september
2007
Í dag fengu allir
hópar heimsókn frá skólahjúkrunarfræðingi, henni Önnu
Guðríði Gunnarsdóttur, og eins og nærri má geta höfðu
allir einhverjar "sárasögur" að segja. Anna
Guðríður mun koma inn til okkar hálfsmánaðarlega og gefa
öllum flúor.
|